Sunnan 5-13 m/s, en hvassara við norðurströndina í fyrstu. Dálitlar skúrir á víð og dreif, en súld eða rigning suðaustantil. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Austurlandi.
Skúrir um landið vestanvert á morgun, en dálítil rigning austanlands. Hiti yfirleitt 5 til 10 stig.
Spá gerð: 20.05.2024 03:32. Gildir til: 21.05.2024 00:00.
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s og skúrir vestantil, en dálítil rigning austanlands. Hiti 5 til 12 stig.
Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 og skúrir, en norðaustlægari og rigning á Vestfjörðum. Hiti 5 til 10 stig. Að mestu þurrt og heldur hlýrra á austanverðu landinu.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt og fer að rigna sunnan- og vestanlands, annars úrkomulítið. Hiti 4 til 12 stig.
Á föstudag:
Suðaustanátt, skýjað og dálítil súld, en lengst af þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
Á laugardag:
Austlæg átt og lítilsháttar væta, en bjartviðri norðan heiða. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
Á sunnudag:
Austanátt og rigning með köflum, en að mestu þurrt á Norðurlandi.
Spá gerð: 19.05.2024 20:11. Gildir til: 26.05.2024 12:00.