Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 17, 22. - 28. apríl 2024

Um 650 skjálftar mældust þessa viku sem eru fleiri en í síðustu viku þegar 450 skjálftar mældust. Virknin var nokkuð dreifð um landið. Stærsti skjálfti vikunnar varð þann 22. apríl, við Reykjanestá og mældist 3,1 að stærð. 

Eldgosið sem hófst 16. mars á Sundhnjúksgígaröð stendur enn yfir og virkni er ennþá bundin við einn gíg. 

Nánar er fjallað um jarðhræringarnar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega. 

Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa

 

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur 

Um 370 skjálftar mældust á Reykjanesskaganum í vikunni, sem er aukning frá því í síðustu viku, þegar 180 skjálftar mældust. Virknin var nokkuð dreifð um skagann en helst var það smáskjálftavirkni í Fagradalsfjalli, og við Sundhnúksgíga. Smá virkni var við Hagafell og rétt vestur af Grindavík. 

Milli Keilis og Kleifarvatns mældust tæplega 100 skjálftar, allir undir 1,4 að stærð. Einnig má nefna skjálftavirkni sunnan við Bláfjöll og austur af Brennisteinsfjöllum. 

Úti á Reykjaneshrygg mældust tæplega 15 skjálftar, stærsti skjálftinn mældist 2,4 að stærð. 

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið 

Um 20 smáskjálftar mældust á Hengilssvæðinu, nokkuð dreift um svæðið, allir undir einum að stærð. 

Þá mældust tæplega 25 skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu nokkuð jafndreift um svæðið. Stærsti skjálfti mældist 2,1 að stærð, við Straumnes, vestur af Selfossi. 

Ekki mældust skjálftar við Heklu í vikunni. 

 

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið 

Þrír skjálftar mældust milli Kerlingarfjalla og Hvítárvatns, sá stærsti 2,2 að stærð. 


Austurgosbeltið 

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði 
Tæplega 20 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli, flestir innan öskjunnar. Stærsti skjálftinn var 1,9 að stærð. Á Torfajökulssvæðinu mældust 10 smáskjálftar, allir undir 1,2 að stærð. 

Vatnajökull 
Rúmlega 30 skjálftar mældust í Vatnajökli þessa viku, sem eru færri enn vikuna á undan, þegar 70 skjálftar mældust. Einn smáskjálfti mældist í Bárðarbungu og sex mældust á djúpa svæðinu suðaustur af Bárðarbungu. Tæplega 10 smáskjálftar mældust í Grímsvötnum í vikunni. Önnur virkni var dreifð milli Hamarsins og Eystri Skaftárketils. 

Norðurgosbeltið 

Askja og Herðubreið 

Við Öskju mældust tæplega 40 smáskjálftar, sem eru töluvert fleiri en í síðustu viku, þegar 15 skjálftar mældust. Flestir þeirra eru austan megin við Öskjuvatn. Tæplega 20 smáskjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl, allir undir einum að stærð. 

Krafla og Þeistareykir 

Þrír skjálftar mældust við Kröflu og við Bæjarfjall mældust um 10 smáskjálftar. Um 30 skjálftar mældust um 7 km suðvestur af Ásbyrgi, sá stærsti 2,0 að stærð. 

 Tjörnesbrotabeltið 

Um 50 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, þar af tæplega 20 á Grímseyjarbrotabeltinu og rúmlega 10 á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu, flestir í Eyjafjarðaráll. 

Um 20 skjálftar mældist í Öxarfirði, sá stærsti 2,0 að stærð. 

 

Skjálftalisti viku 17 

 






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica