Virkni eldgossins sem byrjaði um hádegisbil 29. maí hefur verið nokkuð stöðug síðasta sólahring. Virkni á gossprungunni er frá gígnum sem gaus lengst af í síðasta gosi, til móts við Sundhnúk og á gossprungunni norðan við hann. Hraun rennur aðallega frá gígnum í átt að svæðinu milli Hagafells og Sýlingarfells og þykknar einnig nærri honum. Hraun frá nyrðra hluta gossprungunnar rennur mest til austurs. Engin framrás hefur orðið á þeim hrauntungum sem fóru yfir Grindavíkurveg til móts við Þorbjörn og vestan við bæinn. Hraunið í kringum gamla gíginn bunkast upp í nálægð við virka gíginn.
Lesa meiraÁrið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.
Lesa meiraÍslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meira