Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og rís land þar með sama hraða og áður. Að svo stöddu er ekki ástæða til að áætla annað en að áfram séu töluverðar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni næstu daga. Síðasta eldgos á Sundhnúksgígaröðinni hófst 16. mars. Á þeim 62 dögum sem liðnir eru síðan þá, hafa um 16 milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið undir Svartsengi. Þetta er lengsta lota kvikusöfnunar frá því að þessi atburðarás hófst í lok október 2023.
Lesa meira
Merki um landris á
Reykjanesskaga mældust fljótlega eftir að eldgosinu við Litla Hrút lauk í
byrjun ágúst í sumar. Landrisið er á
svipuðum slóðum og það var fyrir gosið 10. júlí sem stóð yfir í um 4 vikur. Nýjustu GPS
mælingar gefa nú vísbendingar um hröðun á landrisinu.
siðan byrjun águst. Sérfræðingar á Veðurstofunni segja að þeim sýnist á GPS-mælum að landrisið sé á svipuðum slóðum og fyrir síðasta gos í sumar. Þó er aflögun ennþá of litil til að hún sjáist á gervitunglamyndum. Líklegast erum við að horfa á þessa langtímaviðvörun sem við höfum áður haft. Land hefur tekið að rísa um leið og fyrri tveimur gosum lauk en eitthvað hægara en vísbendingar benda til nú.
Lesa meiraUppfært 10. ágúst 2023
Veðurstofan hefur uppfært
hættumatskortið fyrir gosstöðvarnar við Litla-Hrút. Það skal
tekið skýrt fram að enn er hætta nærri
gossvæðinu. Mikill hiti leynist í nýja hrauninu. Sums staðar er aðeins
þunn skel yfir annars funheitu og óstorknuðu hrauni. Jaðrar nýja
hraunsins eru óstöðugir og úr þeim geta fallið stóri hraunmolar. Gas sem
sleppur úr hrauninu getur safnast í dældir. Í kjölfar umbrotanna
leynast líka sprungur á svæðinu sem skapa hættu.