Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir Breiðafjörð

Breiðafjörður

Norðaustan 8-13 og rigning eða slydda en heldur hvassari í kvöld. Hiti 1 til 5 stig. Suðlæg átt 5-13 á morgun, hvassast á Snæfellsnesi. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta. Hiti 5 til 10 stig.
Spá gerð: 19.05.2024 09:37. Gildir til: 21.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en styttir upp um landið austanvert seinnipartinn. Hiti 6 til 12 stig.

Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 en austlæg átt 5-10 á Vestfjörðum. Skúrir á vestanverðu landinu en lengst af þurrt austanlands. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:
Vestlæg átt 3-10 og stöku skúrir, en suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig.

Á föstudag:
Suðaustlæg átt og súld eða rigning sunnan- og vestanlands, en dregur úr úrkomu síðdegis. Bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 9 til 14 stig.

Á laugardag:
Útlit fyrir austlæga átt. Lítilsháttar væta um sunnan- og vestanvert landið en bjart að mestu fyrir norðan og austan. Hlýtt í veðri.
Spá gerð: 19.05.2024 08:34. Gildir til: 26.05.2024 12:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica