Haf- og borgarís í nóvember 2006
Athugið að myndin stækkar ef smellt er á hana.
Landhelgisgæslan fór einu sinni í ískönnunarflug í nóvembermánuði þ. 15.
Þéttleiki íssins var 4-6/10 næst ísbrúninni en 7-9/10 u.þ.b. 5-10 sml. innan við ísbrúnina. Víða var gisinn ís meðfram ísbrúninni, nýmyndun sunnan við 68°N og stórir borgarísjakar inni í meginísnum. Næst landi var ísinn 48 sml. NV af Straumnesi. Þ. 20. hafði lagnaðarís sem var á Pollinum við Akureyri losnað og rekið út fjörðinn og myndaði þar ísspöng og íshrafl sem talið var hættulegt skipum.
Ekki bárust aðrar ísfregnir í mánuðinum.
Norðaustanátt var ríkjandi í Grænlandssundi í nóvember.