Leiðbeiningar um notkun staðaspáa
Staðaspár eru sjálfvirkar veðurspár fyrir ákveðna staði. Svo hægt sé að framleiða veðurspár fyrir staðinn þurfa reglulegar veðurathuganir að vera gerðar þar, þ.e.a.s. á staðnum þarf að vera veðurstöð.
Nýjar staðaspár eru reiknaðar út nokkrum sinnum á sólarhring.
Í stuttu máli
- Skoðið einnig textaspár í stað þess að treysta eingöngu á sjálfvirku spárnar. Ef mikill munur er á sjálfvirkri staðaspá og textaspá fyrir viðkomandi svæði þá gildir textaspáin.
- Hafið í huga að líklegra er að spár til skamms tíma gangi eftir frekar en spár langt fram í tímann.
- Til að skoða mismunandi gildistíma er sleðinn neðan við kortin notaður. Hægt er að styðja á sleðann sjálfann, á dagana, klukkustundirnar eða pílurnar hvoru megin. Einnig er hægt að nota vinstri/hægri örvahnappana á lyklaborðinu.
- Á kortunum koma fram veðurtákn, hiti, vindstyrkur og vindátt.
- Græni punkturinn á kortunum sýnir staðsetningu viðkomandi staðar.
- Ef músin er færð yfir stað birtist nafn staðarins, ásamt spánni á textaformi með frekari upplýsingum um úrkomu.
- Ef stutt er á stað á korti birtist yfirlit fyrir neðan kortið með veðurspá á hádegi næstu daga, auk síðustu veðurathugunar. Í yfirlitinu er hægt að smella á hnapp til þess að skoða spárit fyrir viðkomandi stað.
- Fyrir ofan kortið er fellivalmynd til að velja aðra flokka af stöðum, t.d. strandstöðvar eða vegastöðvar.
- Fyrir neðan kortin er leitarform til að finna spá fyrir staði. Sláið inn fyrstu stafina í nafninu og veljið staðinn síðan úr listanum sem birtist.
- Með því að styðja á Töflu-flipann fyrir ofan kortin má skoða spárnar á töfluformi.
Ítarlegri upplýsingar
Ef mikill munur er á textaspá og sjálfvirkum staðaspám þá gildir textaspáin
Eðlilegt er að einhver munur sé á sjálfvirkum staðaspám og textaspá fyrir viðkomandi spásvæði. Textaspáin gildir fyrir stórt spásvæði á meðan staðaspá gildir fyrir einn ákveðinn stað. Nokkur munur getur verið á veðri á einum stað og veðurlaginu á öllu svæðinu.
Í ákveðnum tilfellum getur sjálfvirka spáin þó beinlínis verið röng. Það er því rétt að skoða einnig textaspár í stað þess að treysta eingöngu á sjálfvirku spárnar. Ef mikill munur er á sjálfvirkri staðaspá og textaspá fyrir viðkomandi svæði þá gildir textaspáin.
Það eru einkum tvær ástæður fyrir því að sjálfvirkar staðaspár verða rangar:
- Við snöggar veðurbreytingar hættir leiðréttingaralgóriþma í staðaspánum til að gefa rangar niðurstöður. Þetta gerist einkum þegar spáð er skyndilegri veðurbreytingu eftir að veðurlag hefur verið einsleitt í langan tíma (t.d. 5 daga eða meira).
- Veðurspálíkanið, sem staðaspárnar byggjast á, geta skilað röngum niðurstöðum. Veðurstofunni berast á hverjum degi niðurstöður úr mörgum spálíkönum. Veðurfræðingur yfirfer niðurstöðurnar og byggir textaspárnar á niðurstöðum sem líklegastar eru til að ganga eftir á hverjum tíma.
Framsetning spágagna á spákortunum
Spágögn, sýnd á kortunum, eru: Veðurtákn, hiti, vindstyrkur og vindátt. Appelsínuguli punkturinn sýnir staðsetninguna. Sjá nánar á myndinni hér til hliðar.
Vindörin sýnir úr hvaða átt vindurinn blæs. Sé norðanátt þá vísar örin niður.
Veðurtáknið er í raun samantekt á öðrum þáttum í spánni. Sjá einnig: Veðurtákn sem notuð eru í staðaspám og athugunum.
Ef músin er færð yfir stað birtist nafn staðarins í boxi við hliðina. Þar birtist einnig gildistími og spágögnin á textaformi. Sé stutt á staðinn birtist yfirlit fyrir hann neðan við kortið. Í yfirlitinu eru hádegisspár næstu dagana og nýjasta veðurathugun. Þar er einnig hnappur til að skoða spárit fyrir staðinn.
Þegar stutt er á stað breytist slóðin í vafranum. Ef spá fyrir sama staðinn er skoðuð reglulega getur verið hentugt að bókmerkja slóðina.
Sleðinn fyrir neðan kortin er notaður til að skipta um gildistíma
Mögulegt er að skipta um gildistíma á marga vegu:
- Hægt er að styðja hvar sem er á sleðann.
- Hægt er að styðja á dagana fyrir ofan sleðann til að skoða hádegisspá fyrir viðkomandi dag.
- Hægt er að styðja á tímann fyrir neðan sleðann.
- Hægt er að styðja á pílurnar báðum megin við sleðann til að skoða fyrri eða næsta gildistíma.
- Hægt er nota vinstri og hægri örvahnappana á lyklaborðinu til að skoða fyrri eða næsta gildistíma.
Leitarform og valmynd til að skipta um flokk spástaða
Til þess að finna stað/stöð er handhægt að nota leitarformið fyrir neðan kortin. Sláið inn fyrstu stafina í nafninu og veljið staðinn síðan úr listanum sem birtist.
Fellivalmyndin fyrir ofan kortin er notuð til að skipta um flokk spástaða. Staðirnir eru settir í nokkra flokka því spárnar komast oft ekki allar fyrir á sama kortinu. Algengt er að sami staðurinn sé í fleiri en einum flokki.
Einnig er hægt að skoða staðaspárnar á töfluformi
Með því að styðja á töfluflipann fyrir ofan kortið er hægt að skoða staðaspárnar á töfluformi. Í töflunum er að finna spágögn fyrir hvern spátíma. Þar koma fram fleiri veðurþættir en á kortunum.