Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir Austurland að Glettingi

Austurland að Glettingi

Austan 3-8 og dálítil rigning eða slydda um tíma. Hiti 0 til 4 stig. Norðaustan 8-15 eftir hádegi á morgun og rigning. Suðaustan 10-18 og léttir til annað kvöld. Hlýnandi veður.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Suðvestanátt, víða á bilinu 8-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum á Norðurlandi. Dálítil rigning eða slydda og hiti 1 til 6 stig, en bjartviðri um landið norðaustanvert með hita að 10 stigum.

Á sunnudag:
Breytileg átt 5-10. Stöku skúrir eða él vestantil, en léttskýjað austanlands. Hiti 2 til 7 stig, en nálægt frostmarki á norðvestanverðu landinu.

Á mánudag:
Breytileg átt 5-10 og él eða skúrir. Gengur í norðvestan 5-13 síðdegis og léttir til sunnan heiða. Hiti kringum frostmark, en allt að 5 stigum sunnantil.

Á þriðjudag:
Breytileg átt og víða þurrt, en stöku él vestast á landinu. Hiti um frostmark, en frostlaust við vesturströndina. Vaxandi austanátt um kvöldið og fer að rigna sunnanlands með hlýnandi veðri.

Á miðvikudag:
Suðlæg átt með vætu, en rofar til norðanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt. Væta með köflum, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti 2 til 7 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 20:38. Gildir til: 24.10.2024 12:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica