Norðan og síðar vestan 5-10 og dálítil væta. Úrkomulítið á morgun og lægir síðdegis, en austan 8-13 og rigning seint annað kvöld. Hiti 5 til 8 stig.
Spá gerð: 16.09.2024 21:31. Gildir til: 18.09.2024 00:00.
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt, víða 10-15 m/s og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast norðaustantil. Snýst í vestlæga átt seinnipartinn, dregur úr vætu og kólnar.
Á fimmtudag:
Suðvestan 3-10 og bjart með köflum, en skýjað og sums staðar dálítil væta vestanlands.
Á föstudag:
Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum við suður- og vesturströndina, annars bjart að mestu. Hiti breytist lítið.
Á laugardag og sunnudag (haustjafndægur):
Austanátt og dálítil rigning með köflum. Hiti 3 til 10 stig.
Á mánudag:
Breytileg átt og rofar til.
Spá gerð: 16.09.2024 20:07. Gildir til: 23.09.2024 12:00.