Austlæg átt 3-8 m/s og bjart með köflum, en léttskýjað á morgun. Hiti 4 til 10 stig, en líkur á næturfrosti.
Spá gerð: 19.04.2025 15:24. Gildir til: 21.04.2025 00:00.
Á mánudag (annar í páskum):
Norðaustan 8-13 m/s suðaustantil, annars hægari vindur. Skýjað með köflum austanlands og á Vestfjörðum og líkur á dálitlum éljum, en bjart að mestu í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, mildast á Vesturlandi, en allvíða næturfrost.
Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-10 og skýjað með köflum, en léttskýjað á Norðurlandi. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Hiti 1 til 10 stig yfir daginn, hlýjast á Vesturlandi.
Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti) og föstudag:
Suðaustan- og austanátt og bjart að mestu, en dálítil væta suðaustantil. Hiti 3 til 12 stig að deginum, mildast suðvestanlands.
Spá gerð: 19.04.2025 08:24. Gildir til: 26.04.2025 12:00.