Veðurhorfur á landinu

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Austan 3-8 m/s og bjart með köflum, en snýst í norðan 8-15 með rigningu seinnipartinn.
Suðvestan 5-10 og dálítil rigning eða súld á morgun.
Hiti 4 til 8 stig.
Spá gerð: 18.10.2024 04:37. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Suðurland

Austlæg átt 8-13 m/s og rigning með köflum. Fremur hægur vindur og þurrt í fyrramálið, en gengur í norðan 10-18 síðdegis á morgun með rigningu. Snýst í suðaustanátt annað kvöld. Hiti 3 til 8 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Faxaflói

Austlæg átt 5-10 og rigning af og til. Styttir upp í fyrramálið. Gengur í norðan 10-18 seint á morgun með rigningu. Hiti 2 til 8 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Breiðafjörður

Austan og norðaustan 8-13 og dálítil rigning. Styttir upp í fyrramálið. Gengur í norðan 10-18 seint á morgun með rigningu, en slyddu á fjallvegum. Hiti 1 til 5 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Vestfirðir

Norðaustan 8-13 og dálítil slydda. Hvessir og bætir í úrkomu seint á morgun, norðaustan 13-20 annað kvöld með rigningu á láglendi, en snjókomu á fjallvegum. Hiti 0 til 4 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Strandir og Norðurland vestra

Austan og norðaustan 3-8, en 8-13 á annesjum og Ströndum. Dálítil slydda eða rigning af og til. Hiti 0 til 4 stig. Gengur í norðan og norðaustan 10-15 síðdegis á morgun með rigningu og súld og hlýnar lítillega.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Norðurland eystra

Austan 3-8 og dálítil rigning eða slydda um tíma. Hiti 0 til 4 stig. Norðaustan 8-15 eftir hádegi á morgun og rigning. Suðaustan 10-18 og léttir til annað kvöld. Hlýnandi veður.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Austurland að Glettingi

Austfirðir

Austlæg átt 3-8 og væta með köflum. Gengur í austan 8-13 fyrir hádegi á morgun með talsverðri rigningu, snýst í suðaustan 13-18 undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Suðausturland

Austlæg átt 5-10 og væta með köflum. Gengur í norðaustan 10-18 fyrir hádegi á morgun með rigningu, snýst í suðaustan 13-20 seinnipartinn og talsverð rigning. Hiti 3 til 9 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Miðhálendið

Austlæg átt 5-10 og dálítil slydda, en þurrt að kalla norðantil. Hiti kringum frostmark. Gengur í norðaustan 13-20 á morgun með rigningu eða slyddu og hlýnar heldur. Hvessir af suðri annað kvöld.
Spá gerð: 17.10.2024 21:43. Gildir til: 19.10.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Suðvestanátt, víða á bilinu 8-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum á Norðurlandi. Dálítil rigning eða slydda og hiti 1 til 6 stig, en bjartviðri um landið norðaustanvert með hita að 10 stigum.

Á sunnudag:
Breytileg átt 5-10. Stöku skúrir eða él vestantil, en léttskýjað austanlands. Hiti 2 til 7 stig, en nálægt frostmarki á norðvestanverðu landinu.

Á mánudag:
Breytileg átt 5-10 og él eða skúrir. Gengur í norðvestan 5-13 síðdegis og léttir til sunnan heiða. Hiti kringum frostmark, en allt að 5 stigum sunnantil.

Á þriðjudag:
Breytileg átt og víða þurrt, en stöku él vestast á landinu. Hiti um frostmark, en frostlaust við vesturströndina. Vaxandi austanátt um kvöldið og fer að rigna sunnanlands með hlýnandi veðri.

Á miðvikudag:
Suðlæg átt með vætu, en rofar til norðanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt. Væta með köflum, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti 2 til 7 stig.
Spá gerð: 17.10.2024 20:38. Gildir til: 24.10.2024 12:00.

Textaspár eru skrifaðar af vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.

Aðrir tengdir vefir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica