Eldgos í Eyjafjallajökli 2010
Gos varð í Eyjafjallajökli á fyrri hluta árs 2010. Í kjölfar töluverðra jarðskorpuhreyfinga, landriss og jarðskjálftavirkni hófst það sem flæðigos á norðanverðum Fimmvörðuhálsi og stóð frá 20. mars til 12. apríl. Hinn 14. apríl hófst síðan sprengigos í toppöskju Eyjafjallajökuls. Í því voru tveir fasar, sprengigos og flæðigos. Gosið stóð í 39 daga og því lauk 23. maí. Áður varð gos í Eyjafjallajökli í desember 1721 og stóð til 1723.
Eldgosið mars-maí 2010 er stærsta gos sem þekkt í eldfjallinu; það framleiddi 0,27 km3 af fínum gosefnum og 0,023 km3 hrauns. Jökulhlaup flutti með sér nokkur þúsund m3/s aurs á fyrstu tveimur dögum gossins í toppgígnum.
Eyjafjallajökull 17. apríl 2010. Ljósmynd: Oddur Sigurðsson.
Efni um gosið í Eyjafjallafökli, birt hér á vefnum
Veðurstofan birti töluvert af efni um eldsumbrotin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli vorið 2010. Það er að finna í tenglum hér fyrir neðan.
- Ýmsar fréttir tengdar gosinu.
- Grein þegar ár var liðið frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli.
- Samsett myndskeið frá eldgosunum sem tekur um 9 mínútur (swf 100 Mb) og spilast í algengustu vöfrum. Inn á kort, ljósmyndir og gervitunglamyndir eru sett örnefni, mælikvarðar og skýringartextar. Samsettar hreyfimyndir sýna breytingu með tíma.