Jarðskjálftayfirlit viku 15, 8. - 14. apríl 2024
Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur
Ríflega 420 skjálftar mældust á Reykjanesskaganum í vikunni. Þar ber helst að nefna skjálftarhrinu 13. apríl í sunnanverðu Kleifarvatni. Þar af var stærsti skjálfti vikunnar á landinu 3,3 að stærð. Einnig var smá hrina í vestanverðu vatninu 12. apríl. Einnig var töluverð smáskjálftavirkni við Lágafell, NV af Grindavík eftir hádegi 14. apríl. Smáskjálftavirkni í Fagradalsfjalli var einnig viðvarandi líkt og hefur verið síðustu mánuði. Einnig má nefna skjálftavirkni sunnan við Bláfjöll 8. apríl.
Úti á Reykjaneshrygg var smá hrina um 90km úti fyrir Reykjanestá. Alls mældust 8 skjálftar úti á hrygg.
Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið
Tæplega 30 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu, nokkuð dreift um svæðið. Þar af stærstir voru tveir skjálftar í Hverahlíð 10. apríl, 2,2 og 2,4 að stærð.
Einnig mældust tæplega 30 skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu nokkuð jafndreift um svæðið.
Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið
10 skjálftar mældust alls á Vestur- og Miðgosbeltinu, þar af var einn skjálfti í Langjökli og 4 skjálftar í Hofsjökli. Stærsti skjálftinn í Hofsjökli var 3,0 að stærð 9. apríl. Einn skjálfti varð ofan við Skagafjörð á gamla rekbeltinu.
Austurgosbeltið
Einn skjálfti mældist rétt vestan við Kirkjubæjarklaustur og einn í Hornafirði.
Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði
9 skjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu og 5 í Mýrdalsjökli. Fremur rólegt virkni þessa vikuna
Vatnajökull
Alls
mældust ríflega 70 skjálftar í Vatnajökli þessa viku, svipað
og vikuna á undan. Þar ber helst að nefna áframhaldandi
smáskjálftavirkni í Bárðarbungu sem telur um 50 skjálfta.
Stærsti skjálftinn var 3,0 að stærð. Um 10 smáskjálftar
mældust í Grímsvötnum í vikunni.
Suðvestur
af Tungnafellsjökli mældist smáskjálfti á 25km dýpi.
Norðurgosbeltið
Askja og Herðubreið
Við Öskju mældust um 15 skjálftar, nokkuð færri en í síðustu viku þegar um 50 skjálftar mældust. Flestir þeirra eru austan megin við Öskjuvatn. Svipað margir skjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl
Krafla og Þeistareykir
Um 10 skjálftar mældust nærri Kröflu og einn við Bæjarfjall.
Tjörnesbrotabeltið
Ríflega 40 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, þar af 10 á Húsavíkur-Flateyjar misgenginu og 16 í Öxarfirði og rest dreifð á Grímseyjarbrotabeltinu.