Ragnar
Stefánsson fæddist í Reykjavík þann 14. ágúst 1938. Hann lést á Landspítalanum
þann 25. júní sl. á 86. aldursári. Alla starfsævi sína var meginverksvið Ragnars fólgið í vöktun á
jarðskjálftum og eldgosum, sem og að rannsóknum sem höfðu það að markmiði að
draga úr hættu af völdum þessara þátta. Á þessu sviði var hann í forystusveit á
alþjóðlegum vettvangi.
Uppfært 9. júlí kl. 11:15
Það hafa mælst tæplega 20 jarðskjálftar yfir kvikuganginum, sá stærsti 1,3 að stærð vestan við Grindavíkurbæ. Þetta er svipuð virkni eins og hefur verið síðustu tvær vikur.
GPS aflögunargögn sýna að landris undir Svartsengi heldur áfram og er búið að vera á svipuðum hraða síðustu daga. Gervitunglamynd frá Sentinel 1 sem spannar tímabilið 25. júní - 7. júlí sýnir sama mynstur. Líkanreikningar byggðir á aflögunargögnum benda áfram til að kvikuinnstreymi sé meira nú en fyrir eldgosið 29. maí. Þessi gögn benda áfram til að annað kvikuhlaup og/eða eldgosi sé líklegt á næstu vikum eða mánuðum.
Lesa meiraJúní var tiltölulega kaldur á landinu öllu, sérstaklega norðaustanlands. Nokkuð langvinnt norðanhret gekk yfir landið í byrjun mánaðar. Óvenjumikið snjóaði á norðanverðu landinu miðað við árstíma sem olli töluverðum vandræðum. Bændur lentu í tjóni, einhvað var um fugladauða og samgöngutruflanir voru á fjallvegum.
Samkvæmt lögum annast Veðurstofan rauntímavöktun á náttúruvá og skal gefa út viðvaranir og spár um yfirvofandi hættu af völdum m.a. jarðskjálfta, eldgosa og jökulhlaupa. Veðurstofan hefur einnig það hlutverk að vera yfirvöldum til ráðgjafar varðandi forvarnir og viðbrögð við náttúruvá. Hluti af því er að meta reglulega og veita upplýsingar um hættu vegna eldfjallavár líkt og í atburðarrásinni á Reykjanesskaga síðustu ár.
Lesa meira