Fréttir

ICEWATER verkefnið hafið

Frábær þátttaka á upphafsfundi

9.4.2025

Um 80 manns tóku þátt á fyrsta fundi í ICEWATER verkefninu, sem haldinn var dagana 24. og 25. mars 2025 í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Fundurinn markaði upphaf þessa metnaðarfulla verkefnis, sem miðar að því að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.

Yfirlitsmynd_inni_2

Markmið fundarins var fyrst og fremst að hrista þennan stóra hóp saman og gefa þeim sem standa að verkefninu tækifæri til að hittast og ræða verkefnið. Farið var yfir ýmis hagnýt mál sem tengjast rekstri Evrópuverkefna og línurnar lagðar fyrir þau verkefni sem fram undan eru.

Saemi_framkvstj

Mynd_VI

Um verkefnið

ICEWATER verkefnið hlaut nýverið um 3,5 milljarð í styrk frá LIFE áætlun Evrópusambandsins og er þetta einn stærsti styrkur sem Ísland hefur fengið úr samkeppnissjóðum ESB.

Verkefnið er leitt af Umhverfis- og orkustofnun og er það unnið í nánu samstarfi við fjölbreyttan hóp íslenskra samstarfsaðila á borð við fagstofnanir ríkisins, sveitarfélög, opinber fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki.

Tafla


Þátttakendur í verkefninu

Eimur, Gefn, Grundarfjarðarbær, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hveragerðisbær, Isavia, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Matvælastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruminjasafn Íslands, Orka náttúrunnar,  Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfis- og orkustofnun, Umhverfis,- orku og loftslagsráðuneyti, Veðurstofa Íslands, Veitur og þrír óbeinur þátttakendur: Sveitarfélagið Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica