Frumkvöðull á sviði veðurathugana
Jónas Hallgrímsson var aðalhvatamaður staðlaðra veðurathugana á Íslandi
Dagur íslenskrar tungu er haldinn í dag á fæðingardegi
Jónasar Hallgrímssonar til að heiðra framlag hans til íslenskunnar. En
ljóðskáldið var líka náttúruvísindamaður og færði okkur mörg góð orð á því
sviði. Það er hins vegar ekki á allra vörum að Jónas Hallgrímsson var
aðalhvatamaður þess að komið var upp þéttu hitamælaneti á Íslandi. Þeir Trausti
Jónsson og Hilmar Garðarsson tóku saman áhugaverða skýrslu á sínum tíma um
Jónas Hallgrímsson og veðurathuganir á Íslandi. Í skýrslunni segir: „Ekki er gott að segja hvenær hann fékk
hugmynd um auknar veðurathuganir, en hún er orðin fullmótuð í ítarlegu frumvarpi
hans um Veður-bækur til deildar Hins íslenska bókmenntafélags í Reykjavík sem
dagsett er 9. apríl 1840 . Hann leggur þar til að Bókmenntafélagið standi fyrir
stöðluðum veðurathugunum á prestsetrum um land allt. Hann bendir fyrst á
almennt fræðilegt gildi slíkra athugana, en síðan einnig á efnahagslegt
mikilvægi þeirra og segir m.a. orðrétt: „Vér Íslendingar höfum samt til skamms
tíma ekki átt kost á að bera ættjörðu vora í þessu tilliti saman við önnur lönd
svo að vér til að mynda getum með sannindum sagt hvað hér megi þrífast og hvað
ekki, því oss hefir að kalla má gjörsamlega vantað réttar sagnir um veðráttufar
vort; höfum vér þá og ekki lagt fram vorn skerf til hinnar almennu, vísindalegu
rannsóknar um þessi efni“. Nánar má lesa um frumkvöðlastarf ljóðskáldsins á
sviði veðurathugana á Íslandi í skýrslu
þeirra Trausta og Hilmars á vefnum okkar.
Jónas Hallgrímsson fæddist
þann 16. nóvember árið 1807 að Hrauni í Öxnadal. „Og hvernig var
svo veðrið þegar Jónas fæddist? Að morgni 16. nóvember var sunnan hvassviðri
eða stormur á Akureyri, úrkomulaust og hiti 5,6 stig á Reaumur kvarða (7°C).
Síðdegis kólnaði, vindur gekk til norðurs og frysti. Þetta var hlýjasti dagur
mánaðarins.“ Segir í lokaorðum skýrslu þeirra
Trausta og Hilmars. Þessa mynd af fjallasýn í nágrenni fæðingarstaðar
Jónasar tók Brynjólfur Sveinsson starfsmaður Veðurstofunnar við
snjóflóðamælingar í Landfjalli í Öxnadal í febrúar 2014. Óvenjumikil ísing var í fjöllum eftir
úrkomusamar, austlægar áttir undanfarna daga.