Jöklabreytingar á Íslandi á COP29
Rætt verður um viðbrögð við hlýnandi loftslagi frá lokum 19. aldar
Þorsteinn Þorsteinsson, jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands,
mun flytja erindi á loftslagsráðstefnunni COP29 fimmtudaginn 21. nóvember
klukkan 18:00 að staðartíma eða klukkan 14:00 hér á landi. Erindið verður
fjarflutt í sérstakri dagskrá ráðstefnunnar um áhrif hlýnunar á ísa og snjóa
jarðar (Cryosphere Pavilion) og verður hluti af setu sem ber heitið: "From
Global Glacier Monitoring to the Global Glacier Casualty List".
Viðburðurinn verður í beinu streymi, og hægt er að fylgjast með honum á þessari
vefslóð.
Rýrnun jökla og hækkun sjávarborðs varðar alla jarðarbúa
Þorsteinn mun ræða um jökla á Íslandi og viðbrögð þeirra við hlýnandi loftslagi frá lokum 19. aldar. Greint verður frá breytingum á lengd og flatarmáli jökla landsins og sýndar nýjustu niðurstöður árlegra afkomumælinga. Rýrnun jökla og hækkun sjávarborðs og áhrif þessara breytinga á vistkerfi og samfélög er málefni sem varðar alla jarðarbúa og í erindinu verður stuttlega lýst spám, sem settar hafa verið fram um afdrif jökla á þessari öld.
Í setunni verður einnig gerð grein fyrir nýlegum og komandi viðburðum í tengslum við alþjóðaár jökla 2025, sem efnt verður til á vegum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Á íslensku hefur alþjóðaárinu verið valið heitið: Jöklar á hverfanda hveli og verða viðburðir hérlendis kynntir á næstunni.