Nauðsynlegt að auka rannsóknir og vöktun á hættu af framhlaupum hérlendis
Ráðstefna á vegum Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Norræna öndvegissetursins NORDRESS
Framhlaup á undanförnum árum t.d. í Hítardal og Öskju, sem og vísbendingar um hættu á berhlaupi úr Svínafellsheiði í Öræfajölki, kalla á auknar rannsóknir og vöktun á hættu af framhlaupum hérlendis. Veðurstofa Íslands og Háskóli Íslands hafa skipulagt ráðstefnu um framhlaup, vöktun á hættu, kortlagningu hugsanlegra framhlaupssvæða og hættumat. Tilgangur ráðstefnunnar er að auka þekkingu á framhlaupum og viðbúnaði við hættu af þeirra völdum hér á landi og stuðla að umræðu og stefnumörkun um rannsóknir og vöktun á framhlaupahættu. Erlendir og íslenskir sérfræðingar fjalla um framhlaup frá ýmsum sjónarhornum.
Fjallað verður um
- Fyrirboða framhlaupa
- Vöktun mögulegra framhlaupssvæða
- Kortlagningu mögulegra framhlaupssvæða
- Líkanreikninga á framhlaupum
Fyrir hádegi verður fjallað um vöktun á svæðunum þar sem hætta er talin á framhlaupum. Eftir hádegishlé verður sagt frá kortlagningu, líkanreikningum og hættumati vegna framhlaupa.
Þeir sem flytja erindi á ráðstefnunni eru:
- Lars Harald Blikra NVE í Noregi
- Reginald Hermanns NGU í Noregi
- Bøhme Martina NGU í Noregi
- Martin Mergili Háskólinn í Vín
- Rudolf Schmidt Austurríska ofanflóðastofnunin
- Giovanni Crosta prófessor við Háskólann í Mílanó
- Erin Linsay, Norwegian University of Svienve and Technology
- Sérfræðingar frá Veðurstofunni og Háskóla Íslands
Ráðstefnan er haldin í Norræna húsinu, þriðjudaginn 13. nóvember frá
kl. 8.30 til 16.30. Ráðstefnan er öllum opin á meðan að húsrúm leyfir, en óskað er eftir því að þátttakendur skrái sig á netfanginu: harpa@vedur.is
Frá uppsetningu mælibúnaðar í hlíðum Svínafellsheiðar í sumar.