Fréttir
Norðan áhlaupið vægara samkvæmt nýjustu spám
Engu að síður eru horfur á að snjór geti sest á vegi norðan- og austanlands, þá einkum fjallvegi
Samkvæmt nýjustu spám í dag,
þriðjudag er útlitið skárra fyrir norðanáttina á miðvikudag, fimmtudag og
föstudag. Spáð er eilítið hlýrra veðri á fimmtudag sem hækkar snjólínuna og
ekki er lengur útlit fyrir aftaka úrkomumagn á föstudag. Engu að síður eru
horfur á að snjór geti sest á vegi norðan- og austanlands, þá einkum fjallvegi,
sem hefur áhrfif þessum árstíma þegar bílar eru að jafnaði vanbúinir til
vetraraksturs. Því eru gular viðvaranir í gildi á norðanverðu landinu.