Fréttir
Jarðskjálftar austan Grímseyjar
Klukkan 07:09 í morgun varð jarðskjálfti, um 4,5 stig á Richter, 13 km ANA af Grímsey.
Einnig varð skjálfti, um 4 að stærð, klukkan 04:51 á sama stað. Nokkuð hratt dregur úr eftirskjálftavirkni.
Þessi hrina er lítið eitt norðvestan við þá virkni sem var hvað mest í síðustu viku,
en þá varð stærsti skjálftinn 4,8 að stærð.