Fréttir
Ný störf á Veðurstofu
Ráðið hefur verið í fimm nýjar stöður stjórnenda við Veðurstofu Íslands sem hér segir:
- sviðsstjóri spár Theodór F. Hervarsson
- sviðsstjóri fars Jórunn Harðardóttir
- sviðsstjóri athugana Óðinn Þórarinsson
- yfirverkefnastjóri náttúruvár Sigrún Karlsdóttir
- yfirverkefnastjóri rannsókna Kristín Vogfjörð
Viðræður standa yfir vegna ráðningar yfirverkefnastjóra afurða. Öll þessi störf hefjast þann 1. janúar næstkomandi þegar ný Veðurstofa Íslands tekur við verkefnum Vatnamælinga Orkustofnunar og Veðurstofu Íslands.