Framhaldsskólar heimsóttir
Sérfræðingar Veðurstofunnar heimsækja nú hátt á annan tug framhaldsskóla víða um land í tilefni af Degi íslenskrar náttúru.
Starfsmennirnir segja frá starfi sínu og svara spurningum frá áhugasömum nemendum.
Margvíslegar áherslur hafa verið í kynningunum eftir fagaðilum. Veðurstofan hefur verið kynnt með glærum og stuttu erindi og í sumum tilvikum hafa tæki hafa verið sýnd á staðnum.
Meðal annars var önnur af tveimur færanlegum ratsjám Veðurstofunnar gangsett fyrir nemendur við Flensborgarskólann í Hafnarfirði.
Skoða má brot af fjölmörgum kynningarglærum sem notaðar voru í kennslustundum.