Veðurstofan nýtur trausts
Mæling á trausti til stofnunarinnar
Dagana 12. - 24. febrúar 2014 gerði Capacent Gallup netkönnun fyrir Veðurstofuna.
Markmiðið var að kanna traust almennings til Veðurstofu Íslands auk samanburðar við aðrar stofnanir. Úrtakið var 1400 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvalið úr viðhorfahópi Capacent Gallup. Þátttökuhlutfall var 58,6%, svarendur 821.
Skemmst er frá því að segja, að 85,3% svarenda bera fullkomið eða mikið traust til Veðurstofu Íslands. Þegar samanburður er gerður við aðrar stofnanir lendir Veðurstofan í 2. sæti hvað varðar traust landsmanna en fimm efstu voru: Landhelgisgæslan, Veðurstofan, Lögreglan, Háskóli Íslands og heilbrigðiskerfið.
Hlutfall svarenda var mjög jafnt m.t.t. kyns og aldursdreifing nokkuð jöfn. Hvað búsetu varðar var um þriðjungur svarenda af landsbyggðinni en um tveir þriðju af höfuðborgarsvæðinu.