Virkni í Mýrdalsjökli
Hófst skömmu eftir miðnætti í nótt, 30. júní
Uppfært kl: 18:00
Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli hefur haldið áfram í dag, en er þó minni m.v. síðustu nótt. Aðallega hafa smáskjálfar mælst í dag, en stærsti skjálftinn var 3,0 að stærð um kl. 15. Rafleiðni í Múlakvísl hefur haldið áfram að aukast jafnt og þétt í dag og jarðhitagas mælist við Láguhvola, sem bendir til þess að aukið hlutfall jarðhitavatns sé í ánni.
Áfram er fylgst mjög náið með Mýrdalsjökli og frekari upplýsingar verða gefnar út á vef Veðurstofunnar ef virknin breytist
Færsla sett inn kl: 11:40
Aukin skjálftavirkni hefur verið í
Kötlu síðustu daga. Skömmu eftir miðnætti í nótt 30. júní hófst hrina og klukkan 6:30 höfðu rúmlega 95
skjálftar mælst, 8 yfir 3 stig og sá stærsti 4.4. Jarðskjálftavirkni í
Mýrdalsjökli síðustu vikur er sú mesta síðan haustið 2016. Mælingar sýna
aukningu í rafleiðni í Múlakvísl sem er nú óvenjuhá miðað við árstíma. Gasmælir
á Láguhvolum sýnir aukningu í jarðhitagasi. Túlkun mælinga bendir frekar til jarðhitavirkni en ekki er hægt að útiloka
kvikuhreyfingar.
Hér er mynd síðan í morgun úr
vefmyndavél við brúna yfir Múlakvísl á Þjóðvegi 1.
Líkur eru á vatnavöxtum í Múlakvísl vegna aukins hlutfalls jarðhitavatns í ánni. Gasmengun við ána getur fylgt jarðhitavatni. Um helgina má búast við hægri breytilegri átt á svæðinu og því getur gas safnast fyrir.
Næstu daga má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli. Jarðskjálftar auka líkur á berg- og íshruni.
Fólki er ráðlagt frá að vera á ferli nærri upptökum Múlakvíslar og við Kötlujökul.