Fréttir
Yfirlit vegna Öræfajökuls
Almannavarnir funduðu með vísindamönnum
Að loknum samráðsfundum í gær og í dag, meðal annars með Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Íslenskum orkurannsóknum, hafa Almannavarnir gefið út samantekt um núverandi stöðu, mögulega þróun og viðbragðsáætlanir.
Núverandi staða Öræfajökuls:
- Skýr merki eru um ókyrrð í Öræfajökli en fjallið hefur þanist út, a.m.k. frá áramótum 2016-17.
- Þenslunni fylgir aukin jarðskjálftavirkni og aflögun, sem kemur fram í úrvinnslu gervitunglagagna og GPS mælinga.
- Engin merki eru að hraði þenslunnar fari minnkandi þó svo að jarðhitavirkni hafi minnkað frá því í desember 2017.
- Orsök þenslunnar er talin vera innskot nýrrar kviku í rótum eldstöðvarinnar. Rúmmálsbreyting síðan þessi atburðarás hófst er af stærðargráðunni 10 milljón rúmmetrar (um 0.2 m3/s) sem er sambærilegt við kvikuinnskot í Eyjafjallajökli á árunum fyrir gosið 2010.
- Nýjar viðnámsmælingar sýna jarðhitaummyndun á litlu dýpi inni í öskju Öræfajökuls sem er merki um tilvist háhitakerfis, svipað og sést í mörgum megineldstöðvum á Íslandi.
Möguleg þróun:
- Virkni Öræfajökuls nú er dæmigerð fyrir eldfjöll sem búa sig undir eldgos. Virknin getur hætt áður en til goss kemur en um það er ekkert hægt að segja á þessu stigi.
- Ein möguleg afleiðing núverandi þróunar er aukin jarðhitavirkni sem gæti orsakað jökulhlaup og gasmengun.
Viðbrögð almannavarna og annarra aðila:
- Haldnir hafa verið fundir með íbúum og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu þar sem þeir hafa verið upplýstir um atburðarás undanfarinna mánaða í Öræfajökli. Fyrirhugað er að halda fund með sömu aðilum undir lok september þar sem farið verður yfir stöðu mála að nýju.
- Unnin hefur verið neyðarrýmingaráætlun fyrir Öræfasveit sem virkjuð verður komi til eldgoss í Öræfajökli fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust. Neyðarrýmingaráætlunina má nálgast hér: https://www.almannavarnir.is/utgefid-efni/neydarryming-oraefajokull/?wpdmdl=23348
- Unnið er að gerð viðbragðsáætlunar vegna eldgos í Öræfajökli á vegum almannavarna í héraði.
- Tækjum til vöktunar eldfjallsins hefur verið fjölgað verulega og náttúruvársérfræðingar Veðurstofu Íslands fylgjast grannt með atburðum. Þeir senda viðvaranir til almannavarna ef þeir verða varir við breytingar.
- Veðurstofa Íslands, Jarðvísindastofnun háskólans og Íslenskar orkurannsóknir með aðstöð Jöklarannsóknarfélags Íslands hafa unnið að auknum rannsóknum á Öræfajökli á undanförnum misserum til að auka skilning á aukinni jarðskjálftavirkni í Öræfajökli, þenslu eldfjallsins og breytingum á jarðhitavirkni.
- Fjarskipafyrirtæki hafa unnið að því að bæta farsímasamband í Öræfum.