Þann 1. janúar 2021 var mæliaðferð
sólskinsstunda breytt í Reykjavík, þ.e. mannaðar mælingar voru aflagðar og
sjálfvirkar tóku yfir. Við breytingar á mæliaðferðum verða óumflýjanlega
breytingar á mælingum.
Vindpokar eða vindsokkar eru notaðir á flugvöllum til að gefa flugmönnum sjónræna vísbendingu um stefnu og styrk vinds í flugtaki og lendingu. Vindpokar geta verið í mörgum litum en hér á landi er heillitaður appelsínugulur poki í notkun eða röndóttur, hvítur og appelsínugulur.
Lesa meiraÍ tilefni af uppsetningu veðursjár á Austurlandi fyrr á árinu býður Veðurstofa Íslands til athafnar við veðursjána þar sem hún er staðsett við Teigsbjarg á Fljótsdalsheiði, miðvikudaginn 12. september. Árni Snorrason forstjóri tekur veðursjána formlega í notkun kl. ellefu og síðan verður boðið til hádegisverðar á Skriðuklaustri, þar sem byggingarsaga veðursjárinnar verður sögð í máli og myndum.
Lesa meiraTalsvert jarðvegs- og öskufok getur verið á sunnanverðu landinu í norðanátt. Ýmis mælitæki sýna þetta.