Náttúruvársérfræðingur
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðinga í vöktun náttúruvár, tímabundið til eins árs. Náttúruvársérfræðingar eru hluti af öflugu teymi vísindafólks og sérfræðinga Veðurstofunnar sem gegna lykilhlutverki við vöktun og rannsóknir á náttúruöflum landsins. Vinnuumhverfið er krefjandi en náttúruvársérfræðingar njóta stuðnings færustu sérfræðinga landsins á sviði náttúruvár sem hafa aðgang að víðfeðmum og háþróuðum vöktunarkerfum sem sýna ástand náttúrunnar í rauntíma. Um er að ræða fjölbreytt vaktavinnustarf og eru vaktir unnar á öllum tímum sólarhringsins allt árið um kring.
Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rauntímavöktun á eldfjöllum og jarðskjálftavirkni á Íslandi.
Vöktun á vatnsföllum og jöklum m.t.t. jökulhlaupahættu.
Fylgjast með veðurspá m.t.t. til hættu á rigningar- eða leysingaflóðum í ám.
Reglulegar veðurathuganir og almenn vöktun á veðri.
Fylgjast með ástandi mælanets sem snýr að náttúruvárvöktun.
Gagnagreining og frágangur gagna.
Útgáfa tilkynninga og skýrslna um náttúruvá.
Miðlun upplýsinga til almennings, fjölmiðla og hagsmunaaðila, þ.m.t. fjölmiðlaviðtöl og útvarpslestur
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði náttúru- og/eða raunvísinda, eða sambærileg menntun, framhaldsmenntun kostur.
Greiningarhæfni gagna og gott vald á úrvinnslu þeirra.
Góð tölvufærni.
Góð hæfni í samstarfi og mannlegum samskiptum.
Hæfni til að miðla upplýsingum.
Skipulagshæfni og nákvæmni.
Geta til að vinna undir álagi.
Hæfni til að taka skjótar ákvarðanir og sýna frumkvæði.
Gott vald á töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.02.2025
Sækja um starf
Nánari upplýsingar veitir
Helga Ívarsdóttir, helga@vedur.is
Sími: 5226000
Borgar Ævar Axelsson, borgar@vedur.is
Sími: 5226000